Eftir að hafa reynt
að kynna mér málið, hef ég komist að eftirfarandi í eins stuttu máli og hægt
er, án þess að sleppa einhverju.
Í
október 2008 hundi íslenska bankakerfið og ríkistjórn D og S setti neyðarlög
sem tryggðu innistæður á Íslandi til fulls, erlendur dómstóll hefur kveðið upp
að þetta var það eina sem þeir gátu gert, til að koma í veg fyrir áhlaup á
bankana, sem hefði gert slæmt ástand enn verra (mig minnir að þetta hafi verið
Evrópudómstólinn en ég fann það ekki í fljótheitum þegar ég var að slá þetta
inn, set það inn um leið og ég finn það).
Bretar setja á okkur hryðjuverkalög.
En Landsbankinn hafði stofnað ICESAVE reikninga þar og í Hollandi.  Samkvæmt íslenskum lögum bar íslenski
tryggingasjóðurinn einungis ábyrgð á 20.887€.
Lög um innistæðutryggingar
og tryggingakerfi fyrir fjárfesta no 98/1999 (byggð á Tilskipun Evrópuþingsins
og ráðsins94/19EB frá 30. maí 1994).
10gr. 1.mgr
Nú hrökkva eignir viðkomandi deildar sjóðsins ekki til þess að greiða
heildarfjárhæð tryggða innistæðna, verðbréfa og reiðufjár í hluteigandi
aðildarfyrirtækjum að skal þá greiða úr hvorri deild skipt þannig milli
kröfuhafa að hvers þeirra allt að 1,7 millj. kr. er bætt að fullu en allt
umfram er þessa fjárhæð skal bætt hlutfallslega jafnt eftir því sem eignir hvorrar
deildar hrökkva til.  Fjárhæð þessi er
bundin við gengi Evru EUR miðað við kaupgengi hennar 5. janúar 1999.  Sjóðurinn verður ekki síðar krafin um frekari
greiðslu þótt tjón kröfuhafa hafi ekki verið bætt að fullu.
Bretar og
Hollendingar ákváðu að greiða innistæðu eigendum annarsvegar 100.000€ og
hinsvegar 50.000 pund.  Einhverjir
embættismenn skrifuðu undir minnisblað um að gengið yrði til samninga við
þjóðirnar 2.  þar var minnst á 10 ára lán
með 6,7% vöxtum.  Búsáhaldabyltingin og
ríkisstjórnin fellur, við tekur minnihlutastjórn S og V studd af B.  Gengið er til kosninga og ný ríkistjórn V og S
tekur við meirihlutanum.  Samninganefnd,
undir forystu Svavar Gestssonar er send út til að semja við þjóðirnar tvær.  Hann kom eftir ótrúlega skamman tíma heim með
það sem að fjármálaráðherra kallaði glæsilega niðurstöðu.  Allar kröfur þeirra samþykktar upp í topp
m.a. Þeir krefja íslendinga um endurgreiðslur á því sem samsvarar 20.887€, en
ef einhver afgangur verður af eigum bankans þegar þetta er allt frá fer
afgangurinn í að borga mismuninn.  En
einnig fá þeir hluta af eigum bankans strax upp i mismuninn.  10 ára lán á 5,5% vöxtum.  "Ég nennti ekki að hafa þetta hangandi yfir
mér".  Sagði Svavar sjálfur þegar heim
var komið.
Ríkistjórnin reyndi að koma
samningnum í gegnum þingið óséðum.  Stjórnarandstaðan
var ekki tilbúin að samþykkja samningin og gera að lögum án þess að fá að lesa
hann og kynna sér samningin.  Þegar farið
var að fjalla um hann kom í ljós að ýmislegt var enn á huldu í sambandi við
samningin og hvaða áhrif hann myndi hafa á land og þjóð.  Hann var samt á endanum samþykktur sem lög
96/2009 2. sept. með fyrirvörum sem að stjórnarandstaðan kom inn í
samningin.  Viðsemjendur okkar voru ekki
tilbúnir að samþykkja þessa fyrirvara.
Þannig að málið var tekið upp að nýju á þingi, þar sem stjórnin vildi
koma þeim út.  Það tókst 30. des þegar nýju
lögin voru samþykkt með 33 gegn 30 atkv.
Um 60.000 Íslendingar skrifa undir áskorun um að skrifa ekki undir lögin
og vísa þeim í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það gerir hann 5. jan 2010.  Þrátt
fyrir að ríkisstjórnin hafi hótað því að hér yrði dauði og djöfull ef lögin
yrðu ekki samþykkt STRAX.   Eftir að
forsetinn neitaði að staðfesta löginn, hafa svo komið fram hinir ýmsu erlendu sérfræðingar,
sem halda því fram að það sé ekki lagaleg skilda á að Íslendingar eigi að borga
þetta allt.  Hluti allavega af skaðanum
eigi að falla á Hollendinga og Breta.
Þetta getur ríkistjórnin ekki sætt sig við og vill allt gera til að láta
okkur borga sem mest og bera sem mesta ábyrgð.
Þessir sérfræðingar vita ekkert um hvað þeir eru að tala.
Þá er bara að ákveða hvort það verður
X já eða X nei.
p.s. hægt er að sjá
lánasamningana í heild á island.is
Í dag eru 5 ár frá flóðunum miklu í Asíu og Afríku.  Var rétt að skríða á fætur þennan dag þegar fréttir komu um að jarðskjálfti og síðan flóðbylgja hefði dunið yfir.  Elsti bróðir minn var einmitt staddur á Sri Lanka, en hann hafði kvænst þar 8 dögum áður.  Það var því svakalega erfiður dagur á meðan að við vorum að bíða eftir því að fá einhverjar fréttir af þeim.  Það var svo um kvöldið sem að við fengum þær fréttir að þau hefðu sloppið, og það væri allt gott.  Þessar fréttir fengum við í gegnum Danmörk.  En íslendingur búsettur þar hafði náð sambandi út.  En það var ekki fyrr en daginn eftir sem að við náðum að tala við hann sjálfan, flóðið hafði stoppað um 10 metrum frá húsinu sem þau hjónin gistu í.  En ástandið var svakalegt og svæðið sem að þau dvöldu á varð illa úti.  Það var hrikalegur léttir loks þegar við náðum sambandi, við hann og heyrðum í honum röddina,  þó svo að þetta hafi verið mikið sjokk fyrir þau, og þau verið mjög slegin, þá hefur aldrei verið eins gott að heyra röddina hans.  Það var svo nokkrum dögum seinna að við vorum að tala við hann aftur þegar hann kvaddi mjög snöggt, hann hafði samband aftur nokkrum tímum síðar, en þá hafði komið annar jarðskjálfti og allir á svæðinu hlaupið upp á hæð, fyrir utan bæinn, það var rétt svo að hann náði að grípa pappírana sína með.  Það var ekki verið að taka neina sjensa.  Og vorum við ekkert smá ánægð þegar hann kom aftur til Danmerkur, þar sem hann býr, verst af öllu var samt, hann þurfti að skilja konuna sína eftir, því að danska útlendingastofnunin er hrikalega erfið að eiga við, og gekk illa að fá dvalarleyfi fyrir hana þar.  Jafnvel voru þeir á því að þar sem að hann var ekki með gilt dvalarleyfi þá vildu danska útlendingastofnun  vísa honum úr landi.   Íslendingar þurfa ekki dvalarleyfi í Danmörku. Annar bróðir minn býr með konu frá Thailandi, en við fengum fljótt fréttir af því að hennar fjölskilda býr mun norðar og lengra inn í landi og því engin hætta hjá þeim.
Er  búin að komast að því að það tekur ekki nema rétt rúma mínútu að koma sér í ullarsokka, hlífðarbuxur, húfu, vettlinga og úlpu.  Síðan er hlaupið út og farið að munda skóflur.  Búin að moka meiri snjó í dag en ég kæri mig um að muna.  búin að fara 2. í dag út að moka bíla úr sköflum.  Núna var fjölsk. að koma inn eftir að vera búin að eyða rúmlega hálftíma í það að reyna að koma gestunum héðan.  Það er moka og ýta, moka meira, ýta meira og svo moka ennþá meira.  Ekkert gekk, það var svo á endanum það tilvonandi gestir á efri hæðinni, sem voru á jeppa þurftu að kippa okkar gesti úr skaflinum svo að hann kæmist á næsta stað.  Ég er nú ekki með hæstu mönnum (160cm) en ég var að vaða snjó upp í hné sumstaðar, þegar ég tók smá mælingu og gekk aðeins hér um, meðan ég fékk skóflu hvíld.  Vorum bara með 3 skóflur að moka.  Samt erum við mjög neðarlega í bænum.  Ekki vildi ég vera efst á brekkunni, né í Giljum né Síðum.  Þar hlýtur að vera snjór upp í klof.
Rehus-Beal-Ledeats       -     Gezur Krislinjden    -       Feliz Navidad     -       Selamat Hari Natal     - Shenoraavor Nor Dari yev Pari Gaghand     -   Idah Saidan Sanah Jadidah      -    Pace e salute     -Boas Festas e Feliz Ano Novo      -       Kung His Hsin Nien bing Chu Shen Tan          -   Sretan Bozic -Gun Tso Sun Tan'Gung Haw Sun      -      Glædelig jul    -  Merry Christmas and a Happy New Year -  Jutdlime pivduluarit ukiortame pivdluarittlo!      -    Gajan Kristnaskon      -    Hyvaa joulua  - Gledhilig jol og eydnurikt nyggjar      -     Bon Noel    -     Froehliche Weihnacten  -  Mele Kalikimaka -Kala Christouyenna    -     Mo'adim Lesimaka.  Chena tova   -    Shub Naya Baras    -  Sreken Bozhik   -    Nollaig Shona Dhuit   -      Buone Feste Natalizie    -       Natale hilare et Annum Faustum    -        Bonu nadale e prosperu annu nou     -        God Jul och Ett Gott Nytt Ar      -     Sawadee Pee Mai.
Nú er nóg komið, á samt nokkur eftir.
Síðast en ekki síst
Gleðileg jól, gott og farsælt komandi ár.
Þegar Guð skapaði konuna vann hann seint á sjötta degi, þegar engill kom að og sagði við hann: "því að eyða svo miklum tíma í Þetta?"
Og Drottinn svaraði: "Hefurðu ekki séð upptalninguna á því sem ég þarf að gera til að skapa hana?  Hún þarf að vera vatnsheld en þó ekki úr plasti, hafa meira en 200 hreyfanlega hluta, sem ekki er hægt að skipta um og hún þarf að geta framleitt hvaða mat sem er, hún þarf að geta faðmað mörg börn í einu og gefið faðmlag sem eitt og sér læknar allt frá skrámu til ástarsorgar.  Þetta allt þarf hún að gera með aðeins tvær hendur."
Engillinn varð mjög hrifinn og sagði: "Bara tvær hendur, það ert ómögulegt.  Og þetta er bara venjulegt eintak!  Þetta er allt of mikil vinna sem þú klárar ekki í dag, geymdu þetta til morguns og kláraðu hana þá."
"Það geri ég ekki" svaraði Drottinn.  "Ég er svo nálægt því að fullgera þetta sköpunarverk sem mun eiga sérstakan stað í hjarta mér.  "Hún læknar sig sjálf þegar hún veikist og hún getur unnið 18 tíma á dag."
Engillinn kom nú nær og snerti konuna.  "En þú hefur gert hana svo mjúka Drottinn." Sagði hann svo.
"Hún er mjúk" svaraði Drottinn.  "En ég hef einnig gert  hana sterka því þú getur ekki ímyndað þér hvað hún þarf að ganga í gegnum og þola."
"Getur hún hugsað?" Spurði engillinn.  Drottinn svaraði:  "Hún getur ekki aðeins hugsað, heldur einnig rökrétt og staðið í samningum."
Engilinn snerti vanga konunnar, "Drottinn það lítur út fyrir að sköpunarverkið leki.  Þú hlýtur að hafa lagt of miklar byrgðar á hana.
"Hún lekur ekki ... Þetta er tár" leiðrétti Drottinn.
"Til hvers er það?" spurði engilinn.
Drottinn svaraði:  "Tárin eru hennar leið til að láta í ljós sorg sína og stolt sitt."
Þetta hafði mikil áhrif á engilinn sem sagði:  "Drottinn, þú er snillingur!  Þú hefur hugsað fyrir öllu.  Þessi kona er stórkostleg!"
Og Drottinn svaraði englinum:  "Það er hún svo sannarlega.  Konan býr yfir slíkum styrk að mestu karlmenn undrast hann.  Hún tekst á við hvaða vandræði sem er og getur borið þungar byrgðar á herðum sér, hamingju, ást og áætlanir.  Hún brosir þegar hana langar til að öskra.  Hún syngur þegar hana langar að gráta, grætur þegar hún er hamingjusöm og hlær þegar hún er hrædd.  Hún berst fyrir því sem hún trúir á.  Hún berst við ranglæti.  Hún tekur ekki nei sem gilt svar þegar hún sér betri lausn.  Hún gefur sjálfa sig svo fjölskyldan geti dafnað.  Hún fer með vini sína til læknis ef hún óttast um þá.  Ást hennar er skilyrðislaus.  Hún grætur þegar börnin hennar eru sigursæl.  Hún er glöð þegar að vinum hennar gengur vel.  Hún gleðst þegar hún heyrir af barnsfæðingum og brúðkaupum.  Hjarta hennar brestur þegar ættingi eða vinur fellur frá.  En hún finnur styrk til þess að takast áfram á við lífið.  Hún veit að faðmlag og kossar geta læknað brostið hjarta."
"Það er aðeins einn galli á henni" sagði Drottinn að lokum.  "Hún gleymir því hversu stórkostleg hún er."
Eitt af því sem ég ber ábyrgð á að gera fyrir jólin er að kaupa og pakka inn jólagjöfunum frá pabba til mömmu.  Hann bara afhedir mér pening og svo á ég að fara að eyða.  Hann vill að hún fái marga pakka um hver jól og hér er jólapakka súpan í ár.  Þetta eru allt pakkar frá pabba til mömmu.
Eftir þá reynslu mína að hafa verið aðstandandi, þegar leit eftir sjóslys, stendur yfir, vil ég koma eftirfarandi ósk á framfæri:
Vinsamlegast komið fram við alla aðstandendur sem bíða svara af virðingu.  Byrjið á því að svara þeim (á undan fjölmiðlum) og svarið þeim þegar þeir leita svara.  Það er svar að segja; það er ekkert nýtt, en þetta er það sem við erum að gera.
Þetta var ekki til staðar þegar ég var aðstandandi og sárindin yfir því að þurfa að vakta fréttir fjölmiðla, til að komast að því hvernig staða væri, sitja enn á sálinni.  Viðmótið sem við mættum sumstaðar í kerfinu gerðu oft illt verra.
Til aðstandenda þeirra sem voru í bátnum sem fórst við Skrúð, í morgun.  Hjarta mitt og hugur er með ykkur nú. Það eru rúm 8 ár síðan ég var í ykkar sporum, var aðstandandi, og beið svara meðan leit stóð yfir, eftir sjóslys.  Því er hjarta mitt og allar mínar bestu hugsanir hjá ykkur.  Vonandi fáið þið svör fljótt.
Hvað er að gerast með þessa þjóð?  Það er allt að verða vitlaust á þingi, ekki í fyrsta sinn.  Og á meðan þaðan berast bara fréttir sem gera ekkert nema rugla mann og annan, og þeir rífast út í eitt um það hvað er í gangi/ekki í gangi.  Ekki að ég ætli að tjá mig neytt um það, því ég vil reyna að halda sem lengst í þá litlu glóru sem enn er til staðar hjá mér.  það eru tveir atburðir þessu algerlega ótengdir sem hafa, að því er virðist,  truflað  þjóðarsálina  mjög þessa vikuna.
Hvaða mál er það þó svo að karl einn í Ameríku hafi líklega lent í rifrildi við eiginkonu sína, eftir að hafa trúlega, sennilega, kannski, haldið framhjá henni.  Hafi svo rokið út af heimilinu og klessu keyrt fína bílinn sinn.  Þó svo að þessi karl geti slegið litla kúlu með kylfu, þá get ég ekki séð að þetta sé það merkilegasta, sem gerðist í tengslum við íþróttir, á einum sólahringi.  En þetta var fyrsta frétt í íþróttafréttatímum hjá bæði RUV og Bylgjunni, nú í byrjun vikunnar.  Það skal tekið fram að ég er eldheitur antisportisti, og er stolt af því.  Veit samt alveg af því að það fer eftir því við hvaða einstakling úr stórfjölskyldunni ég er að tala við, hvaða lið er best og með hverjum ég "held" með.  Ef talað er við þau í Kópavogi þá er það Breiðablik, FH ef ég er að tala við þau í Hafnafirði, KA ef ég tala við brekkusnigilinn ofrv.  Eins er með Man Utd, Chelsea (þurfti að fletta upp hvernig á að skrifa þetta rétt), og hvað þau heita öll þessi lið sem eiga víst að skipta mig máli).  Ekki hef ég hugmynd um hvernig búningarnir þeirra eru á litinn.  Þetta var útúrdúr.  En ég get samt ekki séð hvaða máli það skiptir hvað þessi maður gerir þegar hann er ekki að lemja kúlu.  Hvað þá að það sé það merkilegasta sem gerist, í hinum stóra heimi.  Get ekki séð að það, í hvaða rúmi hann ákveður að sofa eða ekki sofa í, komi okkur og okkar líðan neitt við.  Gott ef vísir er ekki enn að fjalla um þetta mikilvæga mál.
Annað mál, sem hefur einnig hefur verið mikið í umræðunni, hvað með það þó svo að einhverri konu hafi verið hent út af Facebook.  Nú er ég náttúrulega að hætta mér út á hálan ís, því ég hvorki hef lesið fréttina, né lít eins vel og hún (er í laginu eins og tagga, jöfn á hæð og breidd og helmingi minni eða svo á þykkt), á ekki frægan mann (á reyndar engan).  Því veit ég ekki hvort mér sé óhætt að setja út á þetta fár sem varð.  Hvað með það þó að henni hafi verið hent út?  Get ekki séð að það sé eitthvað sáluhjálpar atriði að vera á fésbókinni.  Las ekki fréttina og veit því ekki alveg um hvað þetta fjaðrafok allt snérist.  Það getur vel verið að hún hafi verið komin með grilljón vini, sem hún vill ekki missa af.  Þeir geta varla allir verið þannig að þeir skiti hana einhverju máli, en séu ekki bara tala sem hægt sé að monta sig af.  En ef þetta er svona mikið mál þá getur hún bara stofnað nýja síðu, breytir bara nafninu smá pínu, eða eitthvað slíkt.  Og þrátt fyrir að ég sé einhver snillingur á netinu, þá gæti ég hjálpað henni að gera það.  Sjálf er ég á fésinu, og 2 síður frekar en eina, en sú seinni er reyndar ekki bara fyrir mig, en 9 ára gamall frændi minn varð alveg óður í að fá síðu, en það sem mér fannst hann ekkert hafa þangað að gera.  En leyst málið þannig að hann má vera á auka síðunni minni, en ég hef aðgang og má hvenær sem er fara þangað og fylgjast með, því sem hann er að gera.  En aftur að "fréttinni" verð sennilega bara að fara að grafa hana upp og lesa, til að vita hvað var í gangi, en þar sem ég hef akkurat engann áhuga á þessari konu og langar ekki að kynnast henni, þá held ég að ég sleppi því bara og haldi bara áfram að vera ánægð með mína fávisku, mitt útlit og alla mína galla.
Af því að ég hef verið svo löt að setja inn brandara síðustu viku, þá koma hér þrír stuttir
Magnús mætir til vinnu með stórt glóðarauga og vinnufélagarnir spyrja:
- Hvernig tókst þér nú að krækja í þetta?
- Nú, ég dró bara stúlku upp úr vatninu.
- Og sló hún þig þá?
- Nei, nei! Ekki hún.  En konan mín kom heim, einmitt þegar ég var að drösla henni upp úr baðkarinu.
Lífið er hlaðið af steinum:
Tannsteinum, gallsteinum, nýrnasteinum.... og legsteinum.
..... og svo var það maðurinn sem vildi drekkja sorgum sínum, en bæði konan og tengdamamman voru svo vatnshræddar!
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega, út af járninu, og einn banana til að fá kalíum.  Líka eina appelsínu, út af C-vítamíninu, og einn bolla af grænu tei án sykurs til að forðast sykursýki.  Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót.  Drekka tvo lítra af vatni alla daga og borða þarf hverjum degi jógúrt og eitt skot af LGG, út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera.  Daglega þarf maður að taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi.  Annað hvítt fyrir taugakerfið og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera.  Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga alltaf einn Red Bull í ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.  Daglega skal maður borða trefjar, mjög mikið af trefjum.  Þar til þú kúkar heillri peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum.  Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða.  Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.  Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta, á eftir eplinu, tannbursta, á eftir bananum tannbursta ... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu.  Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma út af öllu vatnsþambinu, trefjunum, og tönnunum.  Síðan á að sofa í átta stundir og vinna í aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða.  Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund.  Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn.  Samkvæmt könnunum eiðum við þremur stundum daglega í sjónvarp ... og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoleiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr og síðan verður þú að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm, það þarf að vökva þau daglega.  Líka þegar þú ferð í frí.  Það er að segja ef þú ferð í frí.  Síðan þarf að vera vel upplýstur.  Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera saman.  Síðan er það kynlífið.  Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi.  Þetta tekur sinn tíma!!! að maður tali nú ekki um tantra-kynlíf!!!  Að öllu framansögðu vil ég minna þig á, það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð.  Það þar líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?! Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag.  Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu.  Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni.  Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.  Er önnur höndin laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!  Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á, á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu.  Ufffff!  En ef þú átt tvær mínútur eftir, sendu þá þetta á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir ...
En nú verð ég að hætta því að eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið.  Aha ég ætla að nýta tímann vel og kippa tannburstanum með mér.  Ef ég er að senda þér þetta í annað sinn, er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með Alzheimer!
Fimm mannætur fengu vinnu í líftæknifyrirtæki.  Þegar forstjórinn tók á móti þeim sagði hann: - Þið eruð núna hluti af liðsheild okkar.  Hér getið þið haft góð laun og fegið að borða í matsalnum og því vil ég biðja ykkur að láta starfsfólkið í friði.
Mannæturnar lofuðu öllu fögru.  Fjórum vikum síðar kom forstjórinn og gaf sig á tal við mannæturnar.  - Þið eruð allar mjög duglegar og ég er mjög ánægður með hvernig þið hafið leyst starf ykkar af hendi.   Það eina sem er að er að nú er húsvörðurinn okkar horfinn.  Vitið þið eitthvað um hann?  Mannæturnar hristu höfuðið og sögðust ekkert vita um hann.  Þegar forstjórinn var farinn sagði foringi mannætanna: - Jæja hver ykkar át húsvörðinn?
Ein hinna fjögurra rétti hikandi upp höndina.  Foringinn öskraði á hann; - Bölvaður asni geturðu verið.  Í  fjórar vikur höfum við hámað í okkur hópstjóra, verkefnisstjóra og deildarstjóra og enginn hefur tekið eftir neinu.  Svo kemur þú upp okkur með því að éta einhvern sem skiptir máli!!!