4.12.2009 | 11:07
04.12.2009
Af því að ég hef verið svo löt að setja inn brandara síðustu viku, þá koma hér þrír stuttir
Magnús mætir til vinnu með stórt glóðarauga og vinnufélagarnir spyrja:
- Hvernig tókst þér nú að krækja í þetta?
- Nú, ég dró bara stúlku upp úr vatninu.
- Og sló hún þig þá?
- Nei, nei! Ekki hún. En konan mín kom heim, einmitt þegar ég var að drösla henni upp úr baðkarinu.
Lífið er hlaðið af steinum:
Tannsteinum, gallsteinum, nýrnasteinum.... og legsteinum.
..... og svo var það maðurinn sem vildi drekkja sorgum sínum, en bæði konan og tengdamamman voru svo vatnshræddar!
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.