26.12.2009 | 00:20
Svaka pen og settleg, eða ekki.
Eftir þessa jóladaga er ég búin að fá endanlega staðfestingu á því, það vantar alveg í mig penu stelpu genin. Þakka bara fyrir að Kalli Bentsen eða einhver álíka er ekki búin að vera nálægt mér, því sú hefði aldeilis fengið að heyra hvernig á ekki að sitja og haga sér. Þessa hátíðardaga sem búnir eru er ég búin að vera mikið á mínum uppáhaldsstað í stofunni, Chesterfield stól inn í horni. Svo eftir stutta stund á þessum stað er ég ósjálfrátt komin í mína uppáhalds stellingu, í hálfgerða bóndabeygju þversum í stólum. Það að ég er búin að vera í kjól og það stuttum, niður á mið læri, hefur ekki stoppað mig, ranka við mér með reglulegu millibili og sest þá eins og á að sitja, en eftir nokkrar mín. er ég aftur komi á hlið. Þakka bara fyrir að hinir í famelíunni eru ekki myndavélaóðir, og ég er ekki að taka myndir af mér, því þá væri ég ekki í góðum málum. Verð að fara að læra að haga mér eins og dama.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.