26.12.2009 | 17:51
Snjór meiri snjór
Er búin að komast að því að það tekur ekki nema rétt rúma mínútu að koma sér í ullarsokka, hlífðarbuxur, húfu, vettlinga og úlpu. Síðan er hlaupið út og farið að munda skóflur. Búin að moka meiri snjó í dag en ég kæri mig um að muna. búin að fara 2. í dag út að moka bíla úr sköflum. Núna var fjölsk. að koma inn eftir að vera búin að eyða rúmlega hálftíma í það að reyna að koma gestunum héðan. Það er moka og ýta, moka meira, ýta meira og svo moka ennþá meira. Ekkert gekk, það var svo á endanum það tilvonandi gestir á efri hæðinni, sem voru á jeppa þurftu að kippa okkar gesti úr skaflinum svo að hann kæmist á næsta stað. Ég er nú ekki með hæstu mönnum (160cm) en ég var að vaða snjó upp í hné sumstaðar, þegar ég tók smá mælingu og gekk aðeins hér um, meðan ég fékk skóflu hvíld. Vorum bara með 3 skóflur að moka. Samt erum við mjög neðarlega í bænum. Ekki vildi ég vera efst á brekkunni, né í Giljum né Síðum. Þar hlýtur að vera snjór upp í klof.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.